Færsluflokkur: Kjúklingur

Kjúklingur með sætum kartöflum - spínati - fetaosti

1 stór sæt kartafla

1 poki spínat

4-5 kjúklingabringur

1 krukka fetaostur

1 lítill rauðlaukur, skorinn fínt

konfekttómatar, skornir í bita

furuhnetur

balsamik gljái

 

Hitið ofninn í 180°. Skrælið sæta kartöflu og skerið í sneiðar eða sneiðið með ostaskera. Látið kartöflusneiðarnar í eldfast mót, setjið smá ólífuolíu yfir, saltið og piprið og setjið inn í ofn í 15 mínútur eða á meðan kjúklingurinn er undirbúinn.

Skerið kjúklingabringurnar í bita og steikið stutt (lokið þeim) á heitri pönnu. Kryddið eftir smekk (mér þykir t.d. gott að nota fajita krydd).

Þegar kartöflurnar hafa verið í ofninum í 15 mínútur eru þær teknar út. Setjð spínat yfir sætu kartöflurnar og kjúklinginn yfir spínatið. Stráið tómötum og rauðlauk yfir og hellið að lokum fetaostinum ásamt olíunni yfir allt. Setjið í ofn og bakið í 30 mínútur.

Á meðan rétturinn er í ofninum eru furuhnetur ristaðar.  Þegar rétturinn kemur úr ofninum er furuhnetunum stráð yfir og balsamik gljáa dreypt yfir.

 

Kjúlli með sætum og fetaosti


Mangó kjúlli / gulur kjúklingur

Þetta er uppáhald litlu dömunnar á heimilinu - ef hana langar í e-ð virkilega gott - þá stingur hún upp á þessu.

5-6 bringur  

salt+pipar (hef notað hvítan)  

4 hvítlauksrif (rifin-kramin)  

1 peli rjómi 

1/2 krukka MangoChutney  

1 msk. karrí

Kjæuklingur skorinn í litla bita, kryddaður með salt og pipar og steiktur á pönnu.  Þegar hann er alveg að verða steiktur er hvítlauk og rest hellt út á og hrært saman.  Látið malla í u.þ.b. 15 mínútur.  Borið fram með hrísgrjónum og brauði.

Til að fá aðeins meiri sósu - hef ég aukið við vökvamagn (hef sett rjóma - matreiðslurjóma - mjólk eða vatn í viðbót við rjómapelann sem er gefinn upp í uppskriftinni)  og krydd - enda er sósan afskaplega góð ein og sér með hrísgrjónum


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband